Opið er fyrir umsóknir í félagshesthús Fáks veturinn 2023 til 2024. Félagshesthúsið er hugsað fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-18 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku og eiga ekki aðstandendur í hestamennsku. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.

Þau sem sækja um og fá pláss koma með eigin hest og allan búnað tengdan hestinum.

Í hesthúsinu er umsjónarmaður sem hægt er að leita til varðandi létta aðstoð eða ráðleggingar varðandi hestana. Iðkendur eru hvattir til að sækja námskeið á vegum félagsins sem í boði eru yfir veturinn.

Hægt er að nýta frístundastyrki bæjarfélaganna við greiðslu á plássi fyrir hestinn.

Skilyrði fyrir umsókn:

  1. Sá aðili sem sótt er um fyrir sé milli 10-18 ára aldurs. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.
  2. Sá aðili sem sækir um hefur hug á að taka virkan þátt í félagshesthúsi Fáks, sinnir sínum hesti og tekur þátt í að vinna þau verk sem þarf að vinna í félagshesthúsinu.
  3. Hestur sem sótt er um pláss fyrir er taminn og laus við húslesti. Umsjónarmaður hesthúss sér um að raða hestum í stíur. Ekki er hægt að sækja um eins hesta stíur.
  4. Allir umsækjendur fá póst hvort þeim hafi verið úthlutað plássi eða ekki.
  5. Barn/unglingur verður skráð í hestamannafélagið Fák ef það er ekki félagi fyrir.
  6. Foreldrar og forráðamenn skulu vera skuldlausir við félagið.
  7. Mánaðargjald per hest fyrir börn-unglinga-ungmenni er 32.000 krónur. Innifalið eru gjafir, hey og undirburður.

 

Tímabil í boði:

  • 1. október til 31. desember – Hægt er að framlengja leigu að tímabili loknu.
  • 1. nóvember til 31. janúar – Hægt er að framlengja leigu að tímabili loknu.
  • 1. desember til 29. febrúar – Hægt er að framlengja leigu að tímabili loknu.

Skráning fer fram í gegnum Sportabler.com

Eftir áramót verða næstu leigutímabil stofnuð.

ATH – Leigjendur eiga að vera farnir með hesta sína í síðasta lagi 15. júní 2024 vegna Landsmóts í Víðidal. Þetta á ekki við þá leigjendur sem hafa öðlast keppnisrétt á mótinu.