Umsóknarfrestur er til 5. júní.
Langar þig að efla færni þína sem knapi og þróa hestinn þinn markvisst áfram? Þá gæti Reiðmaðurinn III verið næsta skref fyrir þig.
Námið er ætlað hestamönnum 18 ára og eldri sem hafa lokið Reiðmanninum II og/eða Knapamerki 5.
Í Reiðmanninum III er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða kennslu þar sem unnið er út frá stöðu, markmiðum og þörfum hvers knapa og hests. Hesturinn getur verið ungur og óreyndur, eða vel taminn reið- og keppnishestur.
Í náminu er lögð áhersla á:
- einstaklingsmiðaða kennslu
- markvissa þjálfunaráætlun
- klassíska reiðmennsku og nytsamlegar æfingar
- aukna færni í þjálfun og uppbyggingu hestsins
- framfarir hjá bæði knapa og hesti
Reiðmaðurinn III er einstaklingsmiðað nám sem hægt er að taka aftur og aftur, þar sem vinnan miðast alltaf við hvern og einn þátttakanda.
Reiðkennari
Kennari námsins er Arnar Máni Sigurjónsson, menntaður reiðkennari frá Hólum.
Arnar Máni er hress og metnaðarfullur kennari sem nær vel til nemenda sinna. Hann hefur mikla keppnisreynslu og hefur náð góðum árangri á því sviði.
Skráning og nánari upplýsingar:
https://endurmenntun.lbhi.is/reidmadurinn/