Sunnudaginn 28 júni verður farið í hina árlegu vorferð ungra Fáksara. Við heimsækjum fjölskylduna á Litlalandi í Ásahrepp þau Ásmund Erni og Stellu Sólveigu og Evu Hrönn. En fjölskyldan hafa komið sér vel fyrir þar í glæsilegri aðstöðu og stunda þar tamningar og þjálfun ásamt hrossarækt.

Æskulýðsnefn Geysis ásamt krökkunum í Geysi eru einnig að gera sér glaðan dag og bjóða okkur í heimsókn á Litlaland.

Við hefjum gleðina kl 13:00 þar sem við skoðum hesthúsið og hrossaræktunarbúið Litlaland.
Við spjöllum, sprellum, förum í leiki og grillum pylsur saman!

Áætluð dagskrá (með fyrirvara um breytingar)

Kl. 11:30 Lagt af stað frá reiðhöllinni í Fáki með rútu
Kl. 13.00 Fjör og grill í Litla-Landi ásamt Geysiskrökkum
Kl. 16.30 Heimferð
Kl. 18.00 Heimkoma, rútan stoppar fyrir utan reiðhöllina.

Mikilvægt er að skrá sig hér að neðan svo hægt sé að áætla mat og fleira.

https://forms.gle/hjcAo8p47NJe7Fux7

 

Hér að neðan er einnig linkur á viðburðinn
https://www.facebook.com/events/36293911823588399?acontext=%7B%22event_action_history%22%3A[%7B%22mechanism%22%3A%22calendar_tab_event%22%2C%22surface%22%3A%22bookmark_calendar%22%7D]%2C%22ref_notif_type%22%3Anull%7D