Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 25. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Skráning fer fram á Sportabler:

https://www.sportabler.com/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.
Námskeiðsgjald:
1. stig kr. 36.000.-
2. stig kr. 30.000.-
3. stig kr. 40.000.-

Þjálfarar sem koma frá Fyrirmyndarfélögum ÍSÍ fá kr. 5000.- í afslátt.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 & 863-1399 og/eða á vidar@isi.is

Dæmi um svör frá nemendum í fjarnámi ÍSÍ þegar þeir voru spurðir út í helstu kosti námsins:
„Mjög vel sett upp, skiljanlegt, aðgengilegt og áhugavert”
„Fannst þetta bara frábært”
„Vel skipulagt og alltaf hægt að fá svör frá kennara ef eitthvað er óljóst”
„Allt kom skýrt fram, farið ítarlega í efnið og verkefnin voru hæfilega erfið”