Róbert Petersen reiðkennari verður með reiðnámskeið á mánudögum og miðvikudögum í reiðhöllinni C-Tröð klukkan 16:00-21:00 í vetur.
Boðið verður upp á einkatíma(40.min) eða paratíma(60.min) þar sem tveir nemendur eru saman í kennslustund. Róbert mun einstaklingsmiða námið fyrir knapa og hest með það að markmiði að ná fram sem mestum framförum í reiðmennsku knapans og gæðum hestsins.
Námskeiðin hefjast mánudaginn 6. janúar og er námskeiðið 8 tímar.
Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com