Æskulýðsnefnd hefur ákveðið að bjóða upp á reiðnámskeið fyrir yngri kynslóðina. 5-11 ára.
Lögð verður áhersla á: stjórnun og ábendingar, gangtegundir, leiki og hindrunarstökk fyrir þá knapa sem eru lengra komnir.
Allir þátttakendur mæta svo og taka þátt í gerð höfuðleðurs (nánar síðar)
Kennt verður á fimmtudögum og líklega tvo laugardags morgna. Átta skipti
Fyrsti tími fimmtudaginn 23. febrúar n.k.
- Hópur 1 kl. 16.30 -17.15 er fyrir minna vana knapa með litla reynslu
- Hópur 2 kl. 17.15- 18.00 fyrir knapa sem eru vanir og ríða einir.
Skráning er á Sportabler hægt er að nýta tómstundastyrki
Verð er kr: 28.000.-
Kennarar: Henna Siren og Sigrún Sig