Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst mánudaginn 2. september nk. með bóklegum tíma í Guðmunarstofu. Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s:

-Atferli hestsins
-Leiðtogahlutverk
-Fortamning á trippi
-Undirbúningur fyrir frumtamningu
-Frumtamning

Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Verð: 71.500.-

Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í TM-Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Skráning fer fram á www.sportabler.com