Árangur Fáksfélaga á Landsmóti var í einu orði sagt stórkostlegur. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í gæðingahluta Landsmóts en þar voru 500 þátttakendur skráðir og hestakosturinn hreint út sagt ótrúlegur í öllum flokkum.
Innan Fáks eigum við magnaða afreksknapa og hesta sem jafnan standa í efstu sætum á Landsmótum og í ár var engin undantekning á því. Unnu þeir 6 af þeim 9 Landsmótstitlum sem keppt var um.
- Konráð Valur Sveinsson á hestum sínum Kjarki frá Árbæjarhjáleigu og Kastor frá Garðshorni tók alla þrjá Landsmótstitlana í skeiðgreinum; 100m, 150m og 250m.
- Árni Björn Pálsson og Álfamær frá Prestsbæ eru Landsmótssigurvegarar í A-flokki gæðinga.
- Sigurður Vignir Matthíasson og Safír frá Mosfellsbæ eru Landsmótssigurvegarar í B-flokki gæðinga.
- Matthías Sigurðsson og Tumi frá Jarðbrú eru Landsmótssigurvegarar í Ungmennaflokki.
Þá voru Fáksfélagar víða í úrslitum og milliriðlum með hesta sína.
Fákur óskar knöpum með magnaðann árangur á mótinu.