Einkatímar með Vigdísi Matthíasdóttur í nóvember! Vigdís hefur átt góðu gengi að fagna í keppni allt frá blautu barnsbeini og sigraði m.a. 100m skeið á Landsmótinu 2014 á Hellu. Vigdís hefur haldið fyrir okkur námskeið fyrir börn og unglinga hjá okkur áður og vöktu þau mikla lukku meðal þeirra er sóttu námskeiðin.

Námskeiðið verður þannig uppsett að hver nemandi færi fjóra 40 mínútna einkatíma sem eru sniðnir að hverjum og einum. Námskeiðið er m.a. tilvalið fyrir hinn almenna reiðmann sem og alla þá sem vilja byrja veturinn að krafti.

Námskeiðið kostar 44.500 kr. Kennt verður miðvikudagana 10., 17., 24. nóvember og 1. desember frá kl. 17-21. Skráning fer fram á https://skraning.sportfengur.com/