Opið er fyrir umsóknir í félagshesthús Fáks veturinn 2021 til 2022.

Umsóknarfrestur er til 24. október. Svör um pláss munu berast í byrjun nóvember.

Skilyrði fyrir umsókn:

  1. Sá aðili sem sótt er um fyrir sé milli 10-18 ára aldurs. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.
  2. Sá aðili sem sækir um hefur hug á að taka virkan þátt í félagshesthúsi Fáks, sinnir sínum hesti og tekur þátt í að vinna þau verk sem þarf að vinna í félagshesthúsinu.
  3. Hestur sem sótt er um pláss fyrir er taminn og laus við húslesti. Umsjónarmaður hesthúss sér um að raða hestum í stíur. Ekki er hægt að sækja um eins hesta stíur.
  4. Mánaðargjald per hest er 26.500 krónur. Innifalið er hey og undirburður.
  5. Leigutíminn er 6 mánuðir með möguleika á framlengingu.
  6. Allir umsækjendur fá póst hvort þeim hafi verið úthlutað plássi eða ekki.
  7. Barn/unglingur verður skráð í hestamannafélagið Fák ef það er ekki félagi fyrir.
  8. Foreldrar og forráðamenn skulu vera skuldlausir við félagið frá fyrra tímabili.

Hér er hlekkur á umsóknarformið