Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst mánudaginn 7. september nk. með bóklegum tíma í Guðmunarstofu. Verklegir tímar hefjast svo 9. september og kemur hver þátttakandi með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s:
-Atferli hestsins
-Leiðtogahlutverk
-Fortamning á trippi
-Undirbúningur fyrir frumtamningu
-Frumtamning
Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í fjórar vikur.
Verð: 45.000.-
Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í TM-Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning fer fram á https://skraning.sportfengur.com/
Námskeiðið er opið fyrir alla félaga í hestamannafélögum.