Boðið er upp á námskeið fyrir útreiðafólk sem vill styrkja leiðtogahlutverk sitt.
Öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn.
Læra að skilja hestinn betur og kenna hestinum á umhverfið.

Kennsla hefst 8. september og fer fram í TM reiðhöllinni (ef næg þátttaka fæst).
Verklegir tímar eru 8 og kennt verður tvisvar í viku (Þriðjudaga og fimmtudaga) svo hægt sé að sleppa hestum aftur ef fólk vill.

  • Hópur 1: minna vanir
  • Hópur 2: knapar sem hafa verið áður hjá okkur

Námskeiðið kostar kr.38.000.-

Verklegir tímar í knapamerkum 1 og 2 eru 15 sem lýkur með prófi.

  • Hópur 3: Knapamerki 1 og 2 saman (ef næg þátttaka fæst).

Námskeiðið kostar kr.71.000.-

Kennt verður tvisvar í viku og lýkur námskeiðinu með verklegu prófi í haust. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum

Rétt er að benda á að það er hægt að nýta frístundastyrk og einnig taka sum stéttarfélög þátt í kostnaði fyrir sína félagsmenn

Kennarar eru: Henna Siren og Sigrún Sig

Skráning fer fram á https://skraning.sportfengur.com/