Almannadalsmótið verður haldið laugardaginn 9. maí klukkan 13:00.
Keppt verður í tölti með T7 fyrirkomulagi; fyrst er riðið hægt tölt og svo snúið við og sýnd frjáls ferð á tölti. Allir byrja upp á vinstri hönd.
Keppt er í eftirfarandi greinum:
- Pollaflokkur
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Minna vanir 18 ára og eldri
- Meira vanir 18 ára og eldri
- 100 metra skeið – Tímataka fer handvirkt fram
Mótið er létt og skemmtilegt og hvetjum við alla áhugasama að mæta og taka þátt. Að loknu móti verða grillaðar pylsur fyrir þátttakendur og gesti.
Hægt er að skrá sig á formi hér að neðan eða á staðnum í Almannadal milli 11:230 og 12:30.
Ekkert skráningargjald er á mótið.