Hestamannafélagið Fákur og Lýsi hafa komist að samkomulagi um áframhaldandi samstarf næstu tvö árin og mun reiðhöllin áfram bera nafn Lýsis.
Lýsi hefur stutt dyggilega við bakið á Fáki undanfarin ár og er það okkur sönn ánægja að hafa endurnýjað samstarfið.
Það var formaður félagsins, Hlíf Sturludóttir, og forstjóri Lýsis, Katrín Pétursdóttir, sem undirrituðu samninginn í höfuðstöðvum Lýsis 16. apríl síðastliðinn.

Frá vinstri: Katrín Pétursdóttir, Einar Gíslason, Hlíf Sturludóttir og Erla Katrín Jónsdóttir.