Brottför: Frá Víðidal kl 10:00 í bílum og með kerrur

Lengd ferðar: 3.klst (einhesta) eða 5 kls. (með fleiri hross til reiða), eftir  hvaða hringur verður fyrir valinu.

Við erum mjög spennt yfir þessari nýjung og vonum að félagar taki vel í. Hugmyndin er að ríða út í kyrrðinni  utan borgarmarkanna og njóta náttúrunnar.

Marardalur er sigdæld undir vesturbrún Skeggja, en svo nefnist hæsti hluti Hengilsins. Dalurinn er luktur hömrum á alla vegu, en botn hans er flatur og grasi gróinn; og er einn þeirra unaðsreita, sem er að finna í nágrenni höfuðborgarinnar.

Við ökum úr bænum og að hestagerði nærri Hellisheiðavirkjun.  Þaðan ríðum við norður  með Húsmúla og Hengli og inn í Marardal.  Þetta er mjög skemmtileg og fjölbreytt reiðleið, og falleg áning í dalnum.  Eftir áninguna eru tveir valkostir: annars vegar að halda sömu leið til baka, sem þýðir ca 3ja tima reiðtúr (u.þ.b 15 km) fram og til baka í hestagerðið. Hins vegar að halda upp úr Marardalnum í norður og snúa síðan suður og aðeins út á heiðina á skemmtilegri reiðgötu. Sú leið er aðeins krefjandi þar sem fara þarf fótgangandi niður nokkuð bratta brekku. Þessi leið er ca 5 tímar í reiðtúr í heildina og því þarf helst að hafa tvo hesta til reiðar.

Mikilvægt: Hugmyndin er að sameinast í kerrur! Það er nauðsynlegt að vera í sambandi við Gulla í gsm 824-6406 eða Sirrýju í gsm 8600-420 til að tilkynna þátttöku og  til að fara yfir kerrumál. Markmiðið er að allir sem hafi áhuga á  komist með, hvort sem menn eigi kerrur eða ekki.

Eins og alltaf þá er ferðin háð veðri og færð.

Kveðjur

Gulli, gsm 824-6406
Sirrý, gsm 8600-420