Skráning á Reykjavíkurmeistaramót Fáks lýkur á miðnætti á morgun þriðjudag. Biðjum við fólk að skrá sig í tíma svo skrifstofa geti brugðist við ýmiskonar vandamálum við skráningu. Þeir félagsmenn Fáks sem ætla að keppa verða að vera búnir að greiða félagsgjöldin 2021.

Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2021“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Skráning fer fram á Sportfeng: https://skraning.sportfengur.com.
Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is. Skráningar sem berast eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Keppendur skulu hafa kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og/eða FEIF.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 7.800 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2 kr. 7.300)
  • 7.300 kr – 1. og 2. flokkur
  • 5.700 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 5.700 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

Það verður að venju mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga um og allir velkomnir að koma og fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum keppnisgreinum, styrkleika- og aldursflokkum!

Boðið verður uppá eftirfarandi flokka náist næg þátttaka:

1Tölt T1Opinn flokkur – Meistaraflokkur
2Tölt T1Ungmennaflokkur
3Tölt T2Opinn flokkur – Meistaraflokkur
4Tölt T2Ungmennaflokkur
5Tölt T3Opinn flokkur – Meistaraflokkur
6Tölt T3Opinn flokkur – 1. flokkur
7Tölt T3Opinn flokkur – 2. flokkur
8Tölt T3Ungmennaflokkur
9Tölt T3Unglingaflokkur
10Tölt T3Barnaflokkur
11Tölt T4Opinn flokkur – Meistaraflokkur
12Tölt T4Opinn flokkur – 1. flokkur
13Tölt T4Opinn flokkur – 2. flokkur
14Tölt T4Ungmennaflokkur
15Tölt T4Unglingaflokkur
16Tölt T4Barnaflokkur
17Tölt T7Opinn flokkur – 2. flokkur
18Tölt T7Unglingaflokkur
19Tölt T7Barnaflokkur
20Fjórgangur V1Opinn flokkur – Meistaraflokkur
21Fjórgangur V1Ungmennaflokkur
22Fjórgangur V2Opinn flokkur – Meistaraflokkur
23Fjórgangur V2Opinn flokkur – 1. flokkur
24Fjórgangur V2Opinn flokkur – 2. flokkur
25Fjórgangur V2Ungmennaflokkur
26Fjórgangur V2Unglingaflokkur
27Fjórgangur V2Barnaflokkur
28Fimmgangur F1Opinn flokkur – Meistaraflokkur
29Fimmgangur F1Ungmennaflokkur
30Fimmgangur F2Opinn flokkur – Meistaraflokkur
31Fimmgangur F2Opinn flokkur – 1. flokkur
32Fimmgangur F2Opinn flokkur – 2. flokkur
33Fimmgangur F2Ungmennaflokkur
34Fimmgangur F2Unglingaflokkur
35Skeið 250m P1Opinn flokkur – Meistaraflokkur
36Skeið 150m P3Opinn flokkur – Meistaraflokkur
37Gæðingaskeið PP1Opinn flokkur – Meistaraflokkur
38Gæðingaskeið PP1Opinn flokkur – 1. flokkur
39Gæðingaskeið PP1Opinn flokkur – 2. flokkur
40Gæðingaskeið PP1Ungmennaflokkur
41Gæðingaskeið PP1Unglingaflokkur
42Flugskeið 100m P2Opinn flokkur – Meistaraflokkur