Dagana 28.-29. desember stendur fræðslunefnd Fáks fyrir námskeiði með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni í TM reiðhöllinni. Stefnt er að því að Anton Páll muni svo koma mánaðarlega í Fák þennan veturinn.

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.

Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross. Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.

Kennslan fer fram í 50 mín einkatímum báða dagana. Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

Lágmarksþátttaka er 8 manns til þess að hægt sé að halda námskeiðið.

Verð er 33.500kr.

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.