Caroline Aldén og Sigurgeir Jóhannsson búa á Selfossi, hafa járningar að fullri atvinnu og reka þar sitthvort járrningafyrirtækið.

Caroline er frá Svíþjóð og hefur búið að íslandi síðan 2010 og hefur lokið 3.ára námi við járningarskólan Wången í Svíþjóð, Sigurgeir lauk námi frá sama skóla vorið 2021. Bæði hafa þau lengi verið í hestum og áhuginn fyrir járningum vaknaði snemma.

Þau hafa mikla reynslu af járningum, allt frá ferðahestum til topp keppnins og kynbótahrossa. Caroline starfar einnig sem járningakennari á hestabraut í Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Námskeiðið er þannig sett upp að á föstudeginum verður bóklegur tími og sýnikennsla, á laugardegi og sunnudegi verður verkleg kennsla og hópnum skipt í tvennt og kennt verður fyrir og eftir hádegi báða daga.

Hver og einn þátttakandi kemur með sinn hest og járningaáhöld.

Verð fyrir hvern þátttakenda er 25.000kr

Skráning fer fram á Sportabler