Fákur óskar eftir áhugasömum sjálfboðaliðum til að skipuleggja og halda mót.

Þeir sem gefa kost á sér þurfa ekki að starfa við öll mót vetrarinns svo því sé haldið til haga. Hægt er að skipta verkum til dæmis á þann veg að einhver hópur sér um 1-2 mót yfir tímabilið.

Áhugasamir eru beðnir að hafa samband með tölvupósti á einar@fakur.is 

Fyrirhugað er að halda fund með þeim sem hafa áhuga á að starfa í mótanefnd miðvikudaginn 11. janúar næstkomandi klukkan 20:00 í Guðmundarstofu.

Kjörið fyrir þau sem vilja starfa  á mótum og þá líka þau sem vilja brydda upp á einhverju nýju í mótahaldi í Fáki.