Árgjald reiðhallarlykla fyrir árið 2021 hefur verið sent til innheimtu í heimabanka núverandi lyklahafa.

Gjaldskrá er óbreytt frá 2020. Hér má sjá allar upplýsingar um gjaldskrána og opnunartíma: http://fakur.is/gjaldskra-tm-reidhallarinnar/

Ætli lyklahafi ekki að endurnýja árgjaldið fyrir 2021 lokast lykillinn sjálfkrafa 18. janúar. Þá falla ógreiddar kröfur sjálfkrafa niður þann 28. febrúar næstkomandi svo það er óþarfi að hafa samband við skrifstofu með ósk um niðurfellingu.

Frá og með morgundeginum, 5. janúar, eru lyklar 2 opnir eins og auglýst er í gjaldskrá, virka daga frá 14:00 til miðnættis og um helgar frá 06:00 til miðnættis.

Þá bið ég lyklahafa að skoða vel reiðhallardagatal TM-reiðhallarinnar áður en æfingar eru skipulagðar. Nú er annasamasti tíminn framundan og hluti hallarinnar mikið bókaður seinnipartinn og fram á kvöld.

Reiðhallardagatalið má finna hér: http://fakur.is/reidhallardagatal/