2. vetrarleikar Fáks verða haldnir laugardaginn 16. mars klukkan 11:00. Vetrarleikar verða hefðbundnir og keppa pollar og börn inni í Lýsishöllinni og aðrir flokkar úti.

Skráning fer fram á Sportfeng í næstu viku.

Ekkert skráningargjald er fyrir polla, 1500 kr fyrir börn, 2.000 kr fyrir unglinga og ungmenni og 3.000 kr fyrir fullorðinsflokka.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að pollar og börn keppa inni í reiðhöllinni. Börn ríða upp á vinsti hönd hægt tölt og síðan frjálsa ferð. Úrslit verða riðin strax á eftir.

Úti skal sýna hægt tölt og frjáls ferð til baka, 2 ferðir. Úrslit á eftir hverjum flokki og verðlaunaafhending.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Pollaflokkur (teymdir)
  • Pollaflokkur (ríðandi)
  • Barnaflokkur minna vanir
  • Barnaflokkur meira vanir
  • Unglingaflokkur – minna vanir
  • Unglingaflokkur – meira vanir
  • Ungmennaflokkur
  • Fullorðnir /minna vanir
  • Fullorðnir / meira vanir