Hin árlega og skemmtilega Hlégarðsreið verður farin laugardaginn næstkomandi, 4. maí.

Lagt verður af stað frá TM-Reiðhöllinni kl. 13:00 og hvetjum við alla til að mæta og skella sér í hressandi útreiðartúr í frábærum félagsskap. Harðarfélagar ríða á móti okkur og hitta okkur í Óskoti.

Harðarfélagar taka á móti okkur í reiðhöllinni þar sem boðið verður upp á matarmikla súpu, kaffi og desert.

Leiðin yfir Hólmsheiði er virkilega skemmtileg og er 15 kílómetrar aðra leiðina eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd úr Kortasjá LH. 

hlégarðsreið