Síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð yngri flokka verður haldinn mánudaginn 6.maí kl.19:00 í veislusal Lýsishallarinnar í Fáki (2.hæð í reiðhöllinni).
Þá verður farið yfir lög og reglur í gæðingakeppni og marga nytsamlega punkta. Þórir Örn Grétarsson landsdómari í gæðingakeppni flytur erindi og svarar spurningum.

Við hvetjum foreldra til að mæta með börnum og unglingum á fyrirlesturinn.

Facebook linkur á fyrirlesturinn   https://fb.me/e/8aGkHeh4Z