Uppskeruhátíð Fáks fór fram á miðvikudagskvöldið í félagsheimili Fáks. Þar voru verðlaunaðir stigahæstu knapar í öllum flokkum. Fáksfélagar voru sem fyrr í fremstu röð á mótaárinu 2021 og eigum við meðal annars nokkra Íslandsmeistara í okkar hópi.
Hér að neðan má sjá sigurvegara sinna flokka og helsta árangur þeirra á árinu.
Íþróttakarl Fáks – Árni Björn Pálsson
- Íslandsmeistari í tölti T1, 4. sæti í fimmgangi F1, 4. sæti í gæðingaskeiði PP1, 6. sæti í flugskeiði 100m og 8. sæti í 150m skeiði.
- Reykjavíkurmeistari í tölti T1 og fimmgangi F1, 4. sæti í 150m skeiði, 7. sæti í 250m skeiði og 6. sæti í 100m skeiði.
- Meistaradeild Líflands – 1. sæti tölti T1, 2. sæti í slaktaumatölti T2, fimmgangi F1 og 150m skeiði, 3. sæti í flugskeiði,
- Gæðingamót Fáks og Spretts – 1. sæti í A-flokki og 2. sæti í B-flokki
Íþróttakona Fáks – Hulda Gústafsdóttir
- Íslandsmót – 7. sæti í fjórgangi V1, 9. sæti í gæðingaskeiði PP1.
- Reykjavíkurmeistaramót – 5. sæti í tölti T3, 8. sæti í fjórgangi V1, 6. sæti í fjórgangi V2.
- Hafnarfjarðarmeistaramót – 1. sæti í fjórgangi V1
- WR íþróttamót Geysis – 1. sæti í fjórgangi V1
Áhugamannaflokkur – Gunnhildur Sveinbjarnardóttir og Jóhann Ólafsson
- Gunnhildur Sveinbjarnardóttir
- Reykjavíkurmeistari í tölti T4, 4. sæti í fjórgangi V2
- Opið íþróttamót Harðar – 1. sæti í tölti T4 og fjórgangi V2
- Opið íþróttamót Dreyra – 1. sæti í tölti T3 og fjórgangi V2
- Jóhann Ólafsson
- Reykjavíkurmeistaramót – 5. sæti í tölti T4
- Equsana deildin – 1. sæti í tölti T4
- WR Suðurlandsmót – 1. sæti í tölti T4
Ungmennaflokkur – Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Arnar Máni Sigurjónsson
- Ylfa Guðrún Svafarsdóttir
- Íslandsmót – 7 sæti í tölti T2, 5. sæti í fjórgangi V1, 9. sæti í fimmgangi F1 og gæðingaskeiði.
- Reykjavíkurmeistari í tölti T1, í A-úrslitum í tölti T2 og fimmgangi F1.
- Opið íþróttamót Spretts – 1. sæti í fimmgangi F1 og í a-úrslitum í fjórgangi V1, tölti T2 og tölti T1.
- Arnar Máni Sigurjónsson
- Íslandsmót – 3. sæti í tölti T1, gæðingaskeiði PP1 og flugskeiði 100M P2. 7. sæti í fjórgangi V1.
- Reykjavíkurmeistari í tölti T2 og gæðingaskeiði PP1.
- Suðurlandsmót yngri flokka – 1. sæti í fjórgangi V1 og flugskeiði 100m, 2. sæti í gæðingaskeiði og 3. sæti í fimmgangi F1.
Unglingaflokkur – Sigurbjörg Helgadóttir og Matthías Sigurðsson
- Sigurbjörg Helgadóttir
- Íslandsmót 5. sæti í fjórgangi V1 / 8. sæti á Íslandsmóti í tölti T1.
- 1. sæti í unglingaflokki á opnu gæðingamóti Fáks og Spretts.
- Reykjavíkurmeistari í fjórgangi V2.
- WR mót Sleipnis – 1. sæti í tölti T3 og 2. sæti í fjórgangi V2.
- Matthías Sigurðsson
- Íslandsmót – 3. sæti í T1, 10. sæti í tölti T4, 7. sæti í fjórgangi V1, 7. sæti í fimmgangi F2 og 4. sæti í gæðingaskeiði PP1.
- Reykjavíkurmeistari í tölti T3, fjórgangi V2 og fimmgangi F2.
- WR mót Sleipnis – 2. sæti í fimmgangi F2, 2. sæti í tölti T4 og 4. sæti í fjórgangi V2.
Barnaflokkur – Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Ragnar Snær Viðarsson
- Lilja Rún Sigurjónsdóttir
- Íslandsmeistari í tölti T4 og í 6. sæti í fjórgangi á sama móti.
- Reykjavíkurmeistari í tölti T4.
- Í A-úrslitum á Reykjavíkurmeistaramóti í fjórgangi V2 og tölti T3.
- Ragnar Snær Viðarsson
- Íslandsmeistari í tölti T3 / 2. sæti í tölti T4 / 8. sæti í fjórgangi V2.
- Reykjavíkurmeistari í tölti T3 og fjórgangi V2.
- 1. sæti í barnaflokki á Opnu gæðingamóti Fáks og Spretts.
- 1. sæti í T3 og V2 á WR móti Sleipnis.