Meðfylgjandi er tilkynning frá Veitum vegna framkvæmda á suðuræð yfir Eilliðaár við Breiðholtsbrú.

Um verkefnið: Hluti af flutningsæð hitaveitu fyrir stóran hluta höfuðborgarsvæðisins fer yfir Elliðaár. Lögnin er hengd upp undir brúna til að takmark rask fyrir lífríkið á svæðinu.

Af öryggisástæðum eru reiðstígar í nágrenni við brúna lokaðir, enda er umferð vinnuvéla og starfsfólks á svæðinu töluverð sem getur fælt hesta.

Tímaáætlun: Ágúst til október 2024.