Í samstarfi við hestavöru- og reiðfataframleiðandann Hrímni, bjóðum við upp á að panta sérframleiddan fatnað merktan Fáki.
Næstkomandi helgi verður hægt að máta fatnað í anddyri Lýsishallarinnar á eftirfarandi tímum:
- Laugardag, 27. janúar, frá 10:00 til 13:00
- Sunnudag, 28. janúar, frá 14:00 til 17:00
Hægt verður að máta allar allar stærðir af þeim vörum sem í boði eru.
Vörur í boði fyrir Fáksfélaga:
- Félagsjakki Fáks – Nýr keppnisjakki frá Hrímni
- Verð: 27.990 kr.
- Hettupeysur merktar Fáki
- Verð: 8.990 kr.
- Hekla – Vind- og vatnsheldur jakki fyrir herra og dömur
- Verð: 18.990 kr.
- Beanie húfur og derhúfur
- Verð: 3.990 kr.
Fyrirkomulag verður þannig að helmingur pöntunar er greiddur á staðnum og rest þegar vörur verða afhentar í maí.
Hvetjum við alla þá sem stefna á að keppa fyrir hönd Fáks á Landsmóti, félagsmenn og aðstandendur að nýta tækifærið til að fá sér vandaðan fatnað á sérkjörum.
Við mætum svo öll á Landsmót í sumar vel merkt okkar félagi og styðjum okkar fólk!
Heitt á könnunni!