Næsta fimmtudag, þann 25 janúar hefst fyrsta keppnin í Meistaradeild Líflands þar sem keppt verður í fjórgangi. Æskulýðsnefndin hefur ákveðið að efna til hittings og bjóða börnum, unglingum og ungmennum að horfa á keppnina saman í veislusalnum í Lýsishöllinni í Fáki.

Í boði verður pizza og getraunaleikur þar sem að tippað er á efstu sætin. Fyrirtækið Réttverk ætlar að bjóða  sigurvegara kvöldsins upp á vegleg verðlaun.

Salurinn opnar kl 18:45 og keppnin hefst kl 19:00.

Hvetjum alla unga Fáksara til að mæta, horfa á góða hesta og knapa og hafa gaman saman.

ATH – mikilægt er að skrá sig á viðburðinn í linknum hér að neðan til að geta áætlað magn af pizzu.
4