Fyrirlestraröð sem er sameiginleg fyrir knapa í yngri flokkum Spretts, Fáks og Sóta.

Haldnir verða fjórir fróðlegir fyrirlestrar sem ætlaðir eru sérstaklega fyrir knapa í yngri flokkum – barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki.

1) Þriðjudaginn 30.janúar kl.19:00 í veislusalnum í Samskipahöllinni, Spretti
Halldór Victorsson íþróttadómari – Hvað eru íþróttadómarar að hugsa? Halldór fer yfir lög og reglur, dómsskala og allt sem viðkemur keppni í íþróttakeppni.

2) Miðvikudaginn 14.febrúar kl.19:00 í veislusalnum í Samskipahöllinni, Spretti
Einar Ásgeirsson fóðurfræðingur – fyrirlestur um fóðrun og bætiefni. Lögð verða drög að fóðuráætlunum.

3) Þriðjudaginn 5.mars kl.19:00 í veislusalnum í Lýsishöllinni, Fáki
Hinrik Þór Sigurðsson reiðkennari – hugarþjálfun og undirbúningur fyrir keppni.

4) Fimmtudaginn 9. maí –   í veislusalnum í Lýsishöllinni, Fáki.
Þórir Örn Grétarsson, gæðingadómari, fer yfir útfærslu á sýningu í keppni, helstu áherslur dómara,  dómsskala og lög og reglur í gæðingakeppni.

Frítt er inn á  alla fjóra fyrirlestrana en mikilvægt er að skrá sig á sportabler: