Róbert Petersen reiðkennari verður með reiðnámskeið á mánudögum í reiðhöllinni C-Tröð klukkan 16:00-21:00 í vetur.

Boðið verður upp á paratíma (60 mín) þar sem tveir nemendur eru saman í kennslustund. Róbert mun einstaklingsmiða námið fyrir knapa og hest með það að markmiði að ná fram sem mestum framförum í reiðmennsku knapans og gæðum hestsins.

Námskeiðin hefjast mánudaginn 4. janúar og er námskeiðið 8 tímar.

Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com