Reiðnámskeið fyrir útreiðafólk sem vill styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn, læra að skilja hestinn betur og kenna hestinum á umhverfið.

Boðið er upp á bæði byrjenda og framhaldsnámskeið. Þetta verða fimm skipti og verður kennt í TM reiðhöllinni.

Verð: 18.000.- Skráning fer fram í gegnum netfangið ss@sigrunsig.com þar sem fram þarf að koma:

  • nafn,
  • kennitala,
  • heimilisfang,
  • netfang og sími.

Útreiða/hesthúsfélagar geta tekið fram ef þeir vilja vera saman.

Kennarar eru: Henna Siren og Sigrún Sig