Miðnæturreið Fáksara í Gjárétt verður farin í kvöld. Beðist er velvirðingar á stuttum fyrirvara.
Lagt verður af stað frá TM-Reiðhöllinni kl. 20:00 og riðið upp í Gjárétt í Heiðmörk sem er ca. 45 – 60 mín reiðtúr.
Í Gjárétt verður áð, étið, drukkið, sungið og svo riðið aftur heim fyrir miðnætti.
Í Gjáréttinni bíður Fákur okkar upp á grillaðar pylsur, gos fyrir yngri kynslóðir og ískaldann Víking fyrir þá eldri.