Á mánudagskvöld, 25. febrúar, klukkan 20:00 í sal TM-Reiðhallarinnar í Fáki verður haldinn fundur um málefni hrossaræktarinnar. Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur koma og kynna það sem efst á döfinni.
Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:
- Þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt
- Dómskalinn – þróun og betrumbætur
- Nýjir vægistuðlar eiginleikanna
- Málefni Félags hrossabænda
Eins og sjá má verður margt áhugavert tekið til umræðu.
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundinn og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.
Heitt á könnunni.