Hið margrómaða Herrakvöld Fáks verður haldið laugardaginn 5. október næstkomandi í Félagsheimilinu í Víðidal. Þetta mikla gleðikvöld verður með hefðbundnum hætti; villibráðarhlaðborð að hætti Silla kokks, happdrætti, góðir drykkir á barnum og góðir menn í salnum.
Dagskrá:
Húsið opnar 19:00
Fordrykkur
Borðhald hefst 20:00
Veislustjóri er Sigurður Haukur Svavarsson
Ræðumaður kvöldsins er Ari Eldjárn
Húsið opnar fyrir gesti eftir borðhald – enginn aðgangseyrir
Kaleb Joshua spilar fyrir dansi
Miðaverð 8.000 kr.
Miðasala fer fram í Skalla Hraunbæ frá mánudeginum 30. september 2019.
Matseðill:
- Rjúpusúpa
- Appelsínugrafið dádýr m/parmasan og trufflu balsamikedik.
- Grafin gæs m/gráðost og epla chutney
- Graflax m/rucola og sinnepssósu
- Gæsalifrarkæfa í púrtvínshjúp
- Villibráða paté m/rifsberjahlaupi
- Villi Tartaletta
- Grafinn og reyktur Skarfur í berjasósu
- Pönnukaka með önd í housinsósu – blaðlauk og gúrku
- Hreindýr á rusty m/villisveppa duxel
- Hreindýrabollur m/sultuðum rauðlauk og gráðostasósu
- Heiðagæs bláberja mareneruð
- Heimalagað rauðkál – waldorfsalat – sykurbrúnaðar og villibráðasósa