Það er ekki seinna  vænna en að minna á fyrsta reiðtúr vetrarins.

16.janúar 2027 verður þorrareiðtúr kl 14:00, brottför frá reiðhöllunni.

Hlutverk útreiðanefndarinnar er að standa fyrir útreiðatúrum fyrir alla Fáksfélaga.  Dagsetningar á reiðtúrum hafa verið ákveðnir og settir inn í Viðburðadagatal Fáks.  Líkt og síðast liðinn vetur verður framan af vetri staðið fyrir reiðtúrum á laugardögum á 3ja vikna fresti frá Reiðhöllinni.  Við byrjum stutt og hægt en aukum vegalengdir og hraða eftir því sem sól hækkar á lofti.  Í lok apríl ríðum við á móti Harðarmönnum og viku seinna heimsækjum við þá í Mosfellsbæinn.  Um miðjan maí og í lok maí eru á dagskrá dagsferðir með kerrur út fyrir borgarmörkin, líkt og tókst svo vel s.l. vor.

Sem fyrr leggjum við áherslu á öryggi og góðan félagsskap.  Við ætlum að hafa reiðtúrana passlega langa og fara hæfilega hratt yfir.  Með þessu er vonast til að sem flestir Fáksfélagar á öllum aldri og með misjafna reynslu og reiðfærni geti tekið þátt og fengið stuðning af hver öðrum.  Reiðleiðir hverju sinni verða valdar með hliðsjón af veðri og vindum.  Ekki þarf að bóka þátttöku fyrirfram heldur bara mæta með klárinn eða klárana við Reiðhöllina á auglýstum dögum, klædd eftir veðri hverju sinni.

Um leið og við þökkum þeim sem tóku þátt í reiðtúrunum s.l. vetur vonumst við til að sjá sem flesta í reiðtúrunum framundan.

Í nefndinni starfa nú Sirrý Gunnarsdóttir s. 8600420 og Gunnlaugur Briem s. 8246406.  Endilega heyrið í okkur ef þið hafið spurningar og viljið taka þátt.