Uppskeruhátíð ungmenna og fullorðinna var haldin í félagsheimili Fáks þann 8. október síðastliðinn þar sem veittar voru viðurkenningar og verðlaunaðir þeir knapar sem stóðu í fremstu röð á keppnisárinu.

Knapar Fáks stóðu margir í fremstu röð á stórmótum ársins eins og Reykjavíkurmeistaramóti, Landsmóti og Íslandsmóti og var árangurinn eftirtektarverður. Eftirfarandi knapar eru titlahafar á Íslandsmóti og Landsmóti.

  • Matthías Sigurðsson – Íslandsmeistari í tölti T2.
  • Árni Björn Pálsson – Íslandsmeistari í fimmgangi F1 og gæðingaskeiði PP1.
  • Teitur Árnason – Íslandsmeistari í 150 m skeiði.
  • Eyrún Ýr Pálsdóttir – Íslandsmeistari og Landsmótssigurvegari í 100 m skeiði.
  • Konráð Valur Sveinsson – Landsmótssigurvegari í 250 m og 150m skeiði.
  • Lilja Rún Sigurjónsdóttir – Samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina ungmenna

Hér að neðan má sjá alla sem fengu viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í sínum flokki á keppnisárinu 2026.

Þá var einnig veitt viðurkenningin sjálfboðaliðar ársins en að þessu sinni hljóta þau verðlaun Gunnlaugur Briem og Sigríður Gunnarsdóttir en saman mynda þau útreiðanefnd Fáks sem tók til starfa síðastliðinn vetur. Fyrsti reiðtúrinn var Þorrareiðtúr og svo voru skipulagðir reiðtúrar á hálfs mánaðar fresti eftir það fram á vor. Þau skipulögðu einnig reiðtúra í Marardal og á Þingvelli. Þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra framlag til félagsstarfsins. Á meðfylgjandi mynd má sjá Hlíf Sturludóttir formann og Gunnlaug Briem. Sigríður Gunnarsdóttir átti því miður ekki heimangengt á hátíðina.

Hægt er að sjá fleiri myndir frá hátíðinni hér að neðan:

Uppskeruhátíð ungmenna og fullorðinna 2026

Íþróttakarl og knapi Fáks – Konráð Valur Sveinsson

Konráð Valur átti sem fyrr farsælt ár á kappreiðabrautinni en einnig í A-flokki gæðinga á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk. Þeir félagar unnu A-flokk á gæðingamóti Fáks og enduðu í 4. sæti í A- flokki á Landsmóti eftir að hafa unnið B-úrslitin daginn áður. Þá varð Konráð Valur tvöfaldur Landsmótssigurvegari í 150 og 250 metra skeiði. Í Meistaradeild Líflands vann hann 100 og 150 metra skeið og varð annar í gæðingaskeiði. Í meistaradeild KS varð hann efstur í gæðingaskeiði og 150m skeiði. Þá var hann í efstu sætum í kappreiðum á öðrum mótum. 

Konráð Valur hefur um árabil verið öflugur fulltrúi Fáks á keppnisvellinum og árangur hans í ár sýnir enn og aftur hversu fjölhæfur knapi hann er. Það er ekki sjálfgefið að vera í fremstu röð bæði í gæðingakeppni og skeiðkappreiðum, en þar hefur Konráð Valur skipað sér meðal okkar fremstu knapa með reynslu sinni, keppnisskapi og metnaði. Konráð Valur hlýtur því einnig viðurkenningu sem knapi ársins hjá Fáki þetta árið.

Íþróttakona – Eyrún Ýr Pálsdóttir

Eyrún átti sérlega gott ár í 100 metra skeiði á árinu. Hún er Landsmótssigurvegari, Íslandsmeistari og Reykjavíkurmeistari í 100 metra skeiði á Friðsemd frá Kópavogi. Á Íslandsmóti varð hún í 4. sæti í fjórgangi V1 og á Landsmóti varð hún í 9. sæti í B-flokki á hestinum Náttrúnu frá Þjóðólfshaga. Í meistaradeild Líflands varð hún í 2. sæti í 100 metra skeiði og átti góðan árangur á öðrum mótum.

Ungmennaflokkur – Matthías Sigurðsson

Á Íslandsmóti varð hann Íslandsmeistari í tölti T2,  hann varð í öðru sæti í gæðingaskeiði og var einnig meðal efstu 5 í fjórgangi V1, fimmgangi F1 og 150 metra skeiði. Á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks varð hann fjórfaldur Reykjavíkurmeistari og á gæðingamóti Fáks vann hann B-flokk. Á Landsmóti varð hann í 4 sæti í A-flokki ungmenna á hestinum Hvirfli frá Mánaskál og komst í milliriðil í B-flokki. Þá átti hann góðan árangur í skeiðgreinum á öðrum mótum.

Ungmennaflokkur – Eva Kærnested

Á Landsmóti varð Eva í fimmta sæti í A-flokki ungmenna og á gæðingamóti Fáks varð hún önnur í B-flokki á hesti sínum Styrki frá Skák. Á Íslandsmóti varð hún þriðja í tölti T1 og fjórgangi V1. Eva var valin með hest sinn Loga frá Lerkiholti inn í íslenska landsliðið í hestaíþróttum sem atti kappi á Norðurlandamóti í Svíþjóð í sumar. Þar varð hún í 3. sæti í tölti T1 og 5. sæti í fjórgangi V1. Þá átti hún góðan árangur á öðrum mótum á árinu. 

Áhugamannaflokkur – Helgi Gíslason

Helgi átti gott keppnisár á skeiðbrautinni á árinu en hann varð Reykjavíkurmeistari í gæðingaskeiði og í 4. sæti í 150m skeiði á sama móti. Þá gerði hann góða ferð á Landsmót þar sem hann varð í 8. sæti í 150 metra skeiði. Þá tók hann þátt í Skeiðleikum Skeiðfélagsins í sumar og var í fyrsta sæti á einu móti og annar á því næsta.  Þessum árangri náði hann á heimaræktuðum gæðingi, Hörpurós frá Helgatúni, sem hann og kona hans ræktuðu.

Áhugamannaflokkur – Hrafnhildur Jónsdóttir

Hrafnhildur sigraði B-flokk áhugamanna á gæðingamóti Fáks og stóð sig svo frábærlega á Landsmóti þar sem hún varð í öðru sæti í sama flokki á hesti sínum Vini frá Sauðárkróki. Hún varð Reykjavíkurmeistari í tölti T4 og átti góðan árangur í öðrum greinum. Þá sigraði hún tölt T4 á íþróttamóti Dreyra og var í 3. sæti í tölti T3. Þá átti hún góðan árangur á öðrum mótum.