Næsta laugardag 29. apríl koma Harðarmenn í heimsókn í Víðidalinn. Harðarmenn leggja af stað frá Naflanum í Mosfellsbæ kl. 13:00.
Tekið verður á móti Harðarmönnum í Guðmundarstofu þar sem hægt verður að kaupa ljúfenga gúllassúpu.
Að venju er riðið á móti Harðarmönnum og verður lagt af stað frá stóra gerðinu í A-tröð klukkan 13:00. Þá verður riðið upp í Ósakot þar sem við hittum Harðarmenn klukkan 14:00.