Opna gæðingamót Fáks og Spretts fer fram dagana 26. og 28 maí 2023 á félagssvæði Fáks.

Forkeppni verður á föstudeginum og úrslit verða riðin á sunnudeginum 28.maí vegna fyrirhugaðrar miðbæjarreið í miðbæ Reykjavíkur og viljum við ekki að það skarist á við mótið

Skráning hófst 18. maí og lýkur næstkomandi mánudag, 22. maí, á miðnætti. Skráning fer fram á Sportfeng, www.sportfengur.com.
Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt

ATHUGIÐ: Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Ekki er hægt að bæta við skráningum eftir að ráslistar hafa verið birtir.

Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
A-flokk gæðinga
B-flokk gæðinga
A-flokk gæðinga áhugamenn
B- flokk gæðinga áhugamenn
A-flokk ungmenna
B- flokk ungmenna
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Gæðingatölt – Áhugamenn
Tölt T1
Gæðingaskeið PP2
Flugskeið 100m P2

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka eða fella niður sé ekki næg skráning.