Vetrarleikar Fáks verða haldnir laugardaginn 20. febrúar klukkan 11:30. Byrjað verður inni í reiðhöll á polla- og barnaflokkum.

Skráning fer fram á þessari slóð: Skráning á fyrstu vetrarleika Fáks

Skráningargjald er 2000 kr, frítt fyrir polla og börn.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að pollar og börn keppa inni í reiðhöllinni. Börn ríða upp á vinsti hönd hægt tölt og síðan frjálsa ferð. Úrslit verða riðin strax á eftir.

Aðrir flokkar keppa úti á Hvammsvelli ef aðstæður leyfa, annars á stóra hringvellinum gegnt félagsheimili Fáks.

Þar er sýnt hægt tölt og frjáls ferð til baka, 3 ferðir. Úrslit á eftir hverjum flokki og verðlaunaafhending.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Pollaflokkur (teymdir)
  • Pollaflokkur (ríðandi)
  • Barnaflokkur minna vanir
  • Barnaflokkur meira vanir
  • Unglingaflokkur
  • Ungmennaflokkur
  • Konur II
  • Karlar II
  • Konur 1
  • Karlar 1

Fákur áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í hverjum þeirra.

Vakin er athygli á því að áhorfendur eru ekki leyfðir innandyra auk þess sem engin veitingasala verður á staðnum.