Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst  fimmtudaginn 3. september kl 19.00 með bóklegum tíma í Guðmundarstofu. Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s:

-Atferli hestsins
-Leiðtogahlutverk
-Fortamning á trippi
-Undirbúningur fyrir frumtamningu
-Frumtamning

Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
​Tímar: 3x í viku í 4 vikur​
Verð: 73.500.-

Skipulag:

  • 1.Tími 3.sept. Bóklegur. Guðmundarstofa kl.19-21
  • 2.tími 4.sept. Verklegur í hesthúsi
  • 3.tími 7.sept. Reiðhöll
  • 4.tími 8.sept.Reiðhöll
  • 5.tími 9.sept.Reiðhöll
  • 6.tími 10.sept.Hesthús
  • 7.tími 14.sept.Reiðhöll
  • 8.tími 15.sept.Reiðhöll
  • 9.tími 16.sept.Reiðhöll
  • 10.tími 17.sept.Reiðhöll
  • 11.tími 21.sept.Reiðhöll
  • 12.tími 22.sept.Reiðtúr

Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 –16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í TM-Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Skráning fer fram á Sportabler og lýkur föstudaginn 31.ágúst 

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Robba í síma 897 5580.