Fákur óskar eftir starfsmanni sem yfirþjálfara félagsins en hlutverk hans er að leiða og skipuleggja fræðslu- og æskulýðsstarf félagsins.
Laun eru verktakalaun og vinnuskylda er í um það bil 9 mánuði á ári. Um hlutastarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð yfirþjálfara
- Að framfylgja stefnu stjórnar um fræðslustarf félagsins, auk umsjónar og skipulagningar þess.
- Stilla upp námskeiðaframboði í samráði við framkvæmdastjóra og í samræmi við námsskrá félagsins.
- Ráða reiðkennara og leiðbeinendur til kennslu á námskeiðum félagsins. Samskipti við reiðkennara um fyrirkomulag reiðkennslu og uppsetning námskeiða í Abler.
- Funda að minnsta kosti einu sinni á önn með öllum þjálfurum félagsins.
- Miðlun upplýsinga til félagsmanna og nemenda um námskeiðahald og æskulýðsstarf félagsins í gegnum vef Fáks og samfélagsmiðla.
- Skipulagning fræðslukvölda.
- Vinna með æskulýðsnefnd að skipulagningu æskulýðsstarfs og skipulagi viðburða á vegum æskulýðsnefndar.
- Samskipti og samráð við formann æskulýðsnefndar hverju sinni.
- Yfirumsjón með gerð æskulýðsskýrslu sem skila skal árlega til LH.
- Samskipti við þjálfara, iðkendur, foreldra og forráðamenn polla, barna, unglinga og ungmenna.
- Önnur tilfallandi störf unnin í samráði við framkvæmdastjóra félagsins.
Menntunar- hæfniskröfur
- Reiðkennararéttindi.
- Góð samskipta- og skipulagshæfni.
- Góð tölvukunnátta.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til og með 13. september.
Upplýsingar veitir Hlíf Sturludóttir formaður í síma 840-7655
Umsóknir ástamt ferilskrá skulu sendar á netfangið fakur@fakur.is