Frá því í byrjun mánaðarins hafa staðið yfir framkvæmdir á keppnisvöllum Fáks. Skipt hefur verið um yfirlag á Hvammsvelli og upphitunarvelli. Gamla yfirlagið nýttist í Brekkuvöll sem var orðinn efnislítill. Þá á eftir að bæta efni í skeiðbrautina. Við minnum á að vellirnir eru lokaðir fram á vorið.
Ljósastaurar hafa verið fjarlægðir af kynbótabrautinni en af þeim var sjónmengun svo ekki sé minnst á þá slysahættu sem þeir sköpuðu.
Þá verður skipt um aflstreng við Hvammsvöll og nýr lagður við kynbótabrautina til að tryggja öruggann flutning rafmagns.
Landsmótsundirbúningurinn fer því vel af stað.