Næstkomandi mánudagskvöld ætla Halldór Viktorson og Sigurður Ævarsson íþrótta- og gæðingadómarar að vera með fræðsluerindi um allt sem við kemur dómgæslu í íþrótta- og gæðingakeppni.
- Farið verður yfir leiðarann og uppbyggingu hans.
- Útskýra hvernig misræmi getur átt sér stað milli dómara.
- Sýna myndbrot og fara yfir sýningar.
- O.s.frv.
Fræðsluerindið verður í veislusalnum í TM-Reiðhöllinni og hefst það klukkan 20:00. Allir velkomnir.