Æskulýðs- og fræðslufulltrúi Fáks, Vilfríður Fannberg, undirbýr nú næsta starfsár.

Óskar er eftir umsóknum frá áhugasömum reiðkennurum sem hefðu hug á því að kenna eða vera með sýnikennslu í Fáki á nýju ári. Fyrirkomulagið getur verið margvíslegt, allt frá dagsnámskeiði til viku- eða mánaðarlegra námskeiða yfir ákveðið tímabil svo dæmi sé tekið.

Þá er óskað eftir því að annað fagfólki í hrossarækt hafi samband sem hefði áhuga á því að vera með fræðslu fyrir Fáksfélaga. Þeir fræðslufundir sem hafa verið haldnir eru vel sóttir og áhugi félagsmanna mikill um allt sem viðkemur hestamennskunni.

Tekið verður við umsóknum/fyrirspurnum á netfanginu vilfridur@fakur.is. Í umsókninni þarf að koma fram um hvers konar námskeið eða fræðslu er að ræða.

Æskulýðs- og fræðslufulltrúi áskilur sér rétt til þess að velja og hafna umsóknum.