Þórdís Erla Gunnarsdóttir reiðkennari frá Hólum mun bjóða upp á tvo 40 mínútna einkatíma í mars og apríl.

Tímarnir eru sniðnir að þörfum hvers og eins og markmiðið að bæta jafnvægi, sjálfstraust og líkamsbeitingu manns og hests. Leitast verður við að útskýra á einfaldan og áhrifaríkan hátt hvernig hægt er að nálgast hvert verkefni.

Kennslan hefst miðvikudaginn 30. mars og verður kennt annan hvern miðvikudag (30. mars og 13. apríl).

Reiðkennslan fer fram í reiðhöllinni í C tröð á miðvikudögum.

 

Verð er 33.500 kr. og skráning fram í gegnum www.Sportfengur.com