Gæðingamót Fáks – Úrtaka fyrir Landsmót 2022 fer fram dagana 26.-29. maí næstkomandi á Hvammsvelli.
Skráning á mótið verður auglýst síðar.
Mótið er lokað þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða.
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á tvöfalda úrtöku og verður fyrirkomulagið eftirfarandi:
- Fimmtudagur 26. maí – Fyrri umferð, allir gæðingaflokkar
- Laugardagur 28.. maí – Seinni umferð, Tölt T1 og skeiðgreinar.
- Sunnudagur 29. maí – Úrslit: Árangur úr fyrri umferð gildir til úrslita.
Ekki er hægt að skrá hesta eða knapa í seinni umferð hafa þeir ekki tekið þátt í þeirri fyrri. Skráning í seinni umferð er valkvæð og verður skráning opin föstudaginn 28. maí frá 08:00 til 12:00 á hádegi.
Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr fyrri eða seinni umferð.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
- A flokkur Gæðinga
- B flokkur Gæðinga
- Ungmennaflokkur
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- Pollaflokkur
- 100m Skeið
- 150m Skeið
- 250m Skeið
- Tölt T1