Hestamannafélagið Fákur og Félag hesthúsaeigenda í Víðidal bjóða fulltrúm allra framboða, sem bjóða fram til borgarstjórnarkosninga 2022, til opins fundar um framtíð hestamennsku og hesthúsabyggðar í Reykjavík, í Víðdal og Almannadal, í kvöld miðvikudaginn 27. apríl kl. 20:00 í félagsheimili Fáks á Vatnsveituvegi undir yfirskriftinni „Framtíð hestamennsku í Reykjavík“.

Stuttar framsögur: Sigurbjörn Bárðarsson, hestamaður, Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt og Sigurbjörn Magnússon, lögmaður.

Meðal fundarefna eru:

  • Lóðaleigusamningar vegna hesthúsa,
  • reiðleiðir og öryggi á reiðstígum,
  • taðlosun,
  • reiðhallir o.fl.

Hvetjum félagsmenn til að mæta.

Stjórn Fáks og Félags hesthúseigenda í Víðidal.