Kæri félagsmaður
Í kvöld verður kynning á námskeiðahaldi Fáks í TM reiðhöllinni kl. 20.00. Fræðslunefnd Fáks býður einnig upp á spjall við gesti um hvernig námskeið fólk hefur áhuga á að fá inn í starfið.
Í kjölfarið mun Einar Ásgeirsson, fóðurfræðingur hjá Fóðurblöndunni halda erindi um fóðrun reiðhesta. Gestir fá afsláttarmiða sem veitir 15 % afslátt af hestavörum Fóðurblöndunnar í einn mánuð.
Kaffi, kruðerlí og að sjálfsögðu bollur í tilefni dagsins gegn vægu gjaldi.
Enginn aðgangseyrir og öll velkomin.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Fræðslunefnd Fáks.