Á föstudag klukkan 18:00 er fyrsti tíminn hjá Hrafnhildi Helgu sem er með námskeiðið vinna í hendi.

Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki.

Einnig verður farið í grunnatriði í hringteymingum og hvernig hægt er að nota það sem viðbót við fjölbreytta þjálfun til að byggja upp réttu vöðvana í hestinum.