Uppskeruhátíð Fáks verður haldin í Félagsheimilinu okkar fimmtudaginn 12. desember næstkomandi klukkan 19:00.

Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2019 í eftirfarandi flokkum:

  • Besti keppnisárangur í barnaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í unglingaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í ungmennaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í áhugamannaflokki, kona og karl
  • Íþróttakona og íþróttakarl Fáks

Þá óskar Fákur eftir upplýsingum um árangur félagsmanna á íþrótta- og gæðingamótum á árinu 2019. Viðmiðunarreglur við val á afreksknöpum má sjá <hér>.

Árangursupplýsingar skulu sendast á netfangið skraning@fakur.is í síðasta lagi föstudaginn 6. desember.  

Silli kokkur sér um veitingar og býður Fákur félagsmönnum í mat. Þeir sem eru tilnefndir til verðlauna og þeir sem hafa unnið sjálfboðastarf fyrir Fák eru sérstaklega hvattir til að mæta.  

Þeir sem hafa hug á að mæta vinsamlega skráið ykkur á lista hér svo við getum áætlað fjölda í mat. Skráning er opin til 10. desember.