Töltslaufurnar eru orðnar fastur liður í vetrarstarfi Fáks, en í ár verður þetta fimmta árið sem boðið verður uppá þessa skemmtilegu þjálfun.

Töltslaufurnar snúast um að æfa saman í fjölmennum hópi þaulskipulagt atriði með hinum ýmsu og oft flóknum reiðleiðum. Að æfa töltslaufur hefur ýmsan ávinning í för með sér fyrir bæði knapa og hest. Slaufurnar eru skemmtileg samvera með konum sem stunda sama áhugamál. Æfingarnar eru á margan hátt krefjandi og reynir meðal annars á samspil á milli hesta og knapa, útsjónarsemi, samvinnu og þolinmæði. Þær skila sér í nákvæmri reiðmennsku, stjórnun og uppbyggjandi þjálfun hestsins ásamt því að stuðla að gleði og fjölbreytni í þjálfun.

Þegar lokatakmarkinu er náð er stefnt að því að sýna afrakstur vetrarins á Stórsýningu Fáks. Það verða tveir hópar og er erfiðleikastigið mismunandi: Slaufur 1 er með skemmtilega uppsettum slaufum sem eru einfaldari í framkvæmd. Slaufur 2 er með flóknum slaufum sem reyna meira á útsjónarsemi, skipulagningu og þolinmæði. S

laufur 1 hentar öllum en við mælum með að þeir sem taka þátt í Slaufur 2 hafi æft í nokkurn tíma og/eða hafi mjög gott vald á reiðleiðum og stjórnun.

Það verða 10 verklegar æfingar á tímabilinu auk gönguæfinga/bóklegra tíma (má búast við aukaæfingum í lok tímabils). Við byrjum á gönguæfingum í byrjun janúar og svo byrja verklegar æfingar um miðjan janúar. Æfingarnar verða 1x í viku á fimmtudagskvöldum kl. 19/20. Þar að auki má búast við auka gönguæfingum/bóklegum tímum ásamt öðrum viðburðum.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com

Verð: 42.500.

Kennari er Sif Jónsdóttir